Kolbeinn Birgir Finnsson, sem lék hálft tímabil með Fylki síðasta sumar, mun ekki leika með Árbæjarliðinu í sumar.
Kolbeinn er á mála hjá Dortmund í Þýskalandi en hefur vegna heimsfaraldursins æft með Fylki að undanförnu.
Kolbeinn er á mála hjá Dortmund í Þýskalandi en hefur vegna heimsfaraldursins æft með Fylki að undanförnu.
Fyrir tíu dögum síðan sagði Kjartan Daníelsson, formaður Fylkis, að vonandi gæti félagið fengið Kolbein lánaðan.
Fótbolti.net hafði samband við Kolbein og spurði hann út í stöðu mála. Hann segir útilokað að hann muni spila með Fylki í sumar og muni fara aftur út til Dortmund þegar æfingar hefjast í júlí.
Kolbeinn skoraði tvö mörk í þrettán leikjum með Fylki í Pepsi Max-deildinni á síðustu leiktíð.
Athugasemdir