Fotbolti.net
30.05.25 - 12:35
Elvar Geir Magnússon

Allegri aftur til AC Milan (Staðfest) - Conte áfram hjá Napoli

Massimiliano Allegri.

Massimiliano Allegri.

Canon

Mynd: EPA

AC Milan hefur ráðið Massimiliano Allegri í stjórastarfið. Hann hefur skrifað undir tveggja ára samning, með möguleika á framlengingu um ár til viðbótar.
Allegri tekur við af Sergio Conceicao sem var látinn fara eftir að hafa aðeins verið sex mánuði í starfinu. Milan féll úr leik í umspili Meistaradeildarinnar og náði ekki Evrópusæti í ítölsku deildinni. Þá tapaði liðið gegn Bologna í úrslitum ítalska bikarsins.

Allegri snýr aftur til Milan ellefu árum eftir að hann var rekinn frá félaginu. Hann stýrði Milan til sigurs í ítölsku A-deildinni 2011 en þekktastur er hann fyrir sigursælan tíma hjá Juventus.

Hann hafði einnig verið orðaður við Ítalíumeistara Napoli en nú segja ítalskir fjölmiðlar að Antonio Conte verði áfram. Það kom upp ágreiningur milli hans og forsetans Aurelio De Laurentiis en búið er að leysa úr honum og báðir aðilar segjast hafa sömu framtíðarsýn fyrir félagið.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Juventus2+56
1Atalanta000
2Inter2+56
2Bologna000
3Cagliari000
3Bologna2+14
4Como000
4Milan1+33
5Napoli1+23
5Fiorentina000
6Frosinone000
6Chievo1+13
7Sampdoria1+13
7Genoa000
8Roma2-13
8Inter000
9Juventus000
9Torino101
10Lazio000
10Lazio101
11Sassuolo101
11Lecce000
12Spal101
12Milan000
13Genoa2-21
13Monza000
14Udinese1-10
14Napoli000
15Atalanta1-10
15Parma000
16Benevento2-20
16Roma000
17Verona1-20
17Sassuolo000
18Cremonese38-2534
18Cagliari1-30
18Torino000
19Crotone1-30
19Udinese000
19Verona38-3621
20Pisa38-4518
20Venezia000
20Fiorentina1-30
Conte stýrir Napoli áfram.

Conte stýrir Napoli áfram.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.