
Keflavík tók á móti HK suður með sjó á HS Orku vellinum í kvöld þegar síðustu leikir fimmtu umferðar Lengjudeildarinnar fóru fram.
Lestu um leikinn: Keflavík 0 - 3 HK
„Gríðarleg vonbrigði og svekkelsi að tapa þessum leik hérna 0-3 á heimavelli. Við ætluðum okkur að sjálfsögðu að koma hérna og ná í þrjú stig og verja heimavöllinn okkar" sagði Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflvíkinga svekktur í leikslok.
HK komst snemma tveimur mörkum yfir í kvöld og voru því í þægilegri stöðu í hálfleik.
„Það er ekkert að gerast í þessum leik fyrr en við ákváðum að gefa þeim mark með því að vera með lélega sendingu til baka á markvörðinn okkar sem gefur víti"
„Fljótlega eftir það spila þeir langt og við töpum seinni boltanum, einn í gegn og 2-0 sem er erfið staða á mót þéttu liði HK sem að verst vel og berjast eins og menn með fljóta stráka fram á við. Við vissum það að það yrði á brattan að sækja" sagði Haraldur Freyr.
Keflvíkingar mættu öflugir inn í seinni hálfleikinn en náðu þó ekki að koma boltanum í netið.
„Í seinni hálfleik finnst mér við vera með stjórn á leiknum og spilum vel úti á velli þó án þess að ná að skapa okkur kannski nógu mikið af færum"
„Fáum þó mikið af hornspyrnum og hálffærum, tvisvar sinnum í slá og Ljúbbi [Stefán Ljubicic] fær færi eftir tvær mínútur í seinni hálfleik sem að hefði gert mikið fyrir okkur að fá smá orku með því að setja á þá mark en við náðum aldrei að setja þá almennilega undir pressu"
„Þriðja markið hjá þeim þá erum við komnir með allt okkar fram og eðlilega fáum við á okkur færi þegar við erum opnir og niðurstaðan 3-0 og bara mikil vonbrigði en það þýðir ekki að leggajst niður og grenja. Við þurfum að járna upp og mæta eins og menn í næsta leik"
Nánar er rætt við Harald Frey Haraldsson þjálfara Keflavíkur í spilaranum fyrir ofan.
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. ÍR | 11 | 7 | 4 | 0 | 20 - 6 | +14 | 25 |
2. Njarðvík | 11 | 6 | 5 | 0 | 29 - 11 | +18 | 23 |
3. HK | 11 | 6 | 3 | 2 | 22 - 12 | +10 | 21 |
4. Þróttur R. | 11 | 5 | 3 | 3 | 20 - 18 | +2 | 18 |
5. Þór | 11 | 5 | 2 | 4 | 26 - 19 | +7 | 17 |
6. Keflavík | 10 | 4 | 3 | 3 | 19 - 14 | +5 | 15 |
7. Völsungur | 11 | 4 | 1 | 6 | 17 - 26 | -9 | 13 |
8. Grindavík | 10 | 3 | 2 | 5 | 24 - 30 | -6 | 11 |
9. Fylkir | 11 | 2 | 4 | 5 | 15 - 17 | -2 | 10 |
10. Fjölnir | 11 | 2 | 3 | 6 | 12 - 24 | -12 | 9 |
11. Leiknir R. | 11 | 2 | 3 | 6 | 12 - 25 | -13 | 9 |
12. Selfoss | 11 | 2 | 1 | 8 | 10 - 24 | -14 | 7 |