Arne Slot rekinn frá Liverpool

Liverpool hefur ákveðið að reka Arne Slot

Mynd: EPA

Liverpool hefur ákveðið að reka Arne Slot

Mynd: EPA
Liverpool hefur tekið ákvörðun um að reka hollenska stjórann Arne Slot. Þetta fullyrðir Fabrizio Romano á X í dag.
Slot var ráðinn stjóri Liverpool sumarið 2024 eftir að Jürgen Klopp hætti með liðið.
Hann gerði Liverpool að Englandsmeisturum á sínu fyrsta tímabili en náði ekki að fylgja þeim árangri eftir. Liverpool hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að láta hann fara.
Forráðamenn Liverpool funduðu með Slot á dögunum þar sem farið var yfir frammistöðu liðsins á tímabilinu.
Hann er sagður hafa misst traust leikmanna, sérstaklega þeirra reynslumeiri.
Liverpool náði rétt svo að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni undir lok tímabilsins en tuttugu töp í öllum keppnum urðu honum að falli.
Andoni Iraola, fyrrum stjóri Bournemouth, er talinn líklegastur til að taka við. Hann hefur verið í viðræðum við þýska félagið Bayer Leverkusen síðustu daga en líklegasta sviðsmyndin er að hann slíti þeim viðræðum og taki við Liverpool.

???????? EXCLUSIVE: ARNE SLOT AND LIVERPOOL TO PART WAYS WITH IMMEDIATE EFFECT. ????
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) May 30, 2026
It’s over between the Dutch manager and Liverpool after end of the season review. ????????
Andoni Iraola, clear favorite to take over as next #LFC head coach. pic.twitter.com/8VIz644RFi
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 0 | 0 | 0 |
| 2 | Aston Villa | 0 | 0 | 0 |
| 3 | Bournemouth | 0 | 0 | 0 |
| 4 | Brentford | 0 | 0 | 0 |
| 5 | Brighton | 0 | 0 | 0 |
| 6 | Chelsea | 0 | 0 | 0 |
| 7 | Coventry | 0 | 0 | 0 |
| 8 | Crystal Palace | 0 | 0 | 0 |
| 9 | Everton | 0 | 0 | 0 |
| 10 | Fulham | 0 | 0 | 0 |
| 11 | Hull City | 0 | 0 | 0 |
| 12 | Ipswich Town | 0 | 0 | 0 |
| 13 | Leeds | 0 | 0 | 0 |
| 14 | Liverpool | 0 | 0 | 0 |
| 15 | Manchester City | 0 | 0 | 0 |
| 16 | Manchester Utd | 0 | 0 | 0 |
| 17 | Newcastle | 0 | 0 | 0 |
| 18 | Nott. Forest | 0 | 0 | 0 |
| 18 | West Ham | 38 | -19 | 39 |
| 19 | Burnley | 38 | -37 | 22 |
| 19 | Sunderland | 0 | 0 | 0 |
| 20 | Wolves | 38 | -41 | 20 |
| 20 | Tottenham | 0 | 0 | 0 |