Mikel Arteta, stjóri Arsenal, ræddi við enska fjölmiðla eftir tap liðsins gegn PSG í úrslitum Meistaradeildarinnar.
„Maður verður að takast á við það sem maður þarf að gera. Ef maður finnur fyrir sársauka sársauka þá þarf maður að takast á við hann. Ef maður hefur gert eitthvað rangt, þá þarf maður að læra af því. Hugleiddu það, sýndu metnaðinn að við viljum gera þetta aftur," sagði Arteta.
Liðið tapaði í vítaspyrnukeppni þar sem Gabriel og Eberechi Eze klikkuðu á sínum spyrnum. Margir leikmenn sem kunna vel við sig á vítapunktinum voru farnir af velli.
„Gabriel vildi taka fimmta vítið. Venjulega eru Bukayo Saka, Ödegaard og Havertz þeir sem taka víti og við vissum að þegar við vorum komin í framlengingu og vítaspyrnukeppni að það myndu aðrir taka víti," sagði Arteta.
„Við vorum enn með gæði og Eze klikkar ekki á víti á æfingum en svo þurfum við að taka víti á svona augnabliki og því miður vorum við ekki með sömu nákvæmni."
