Barcelona stóð uppi sem Spánarmeistari eftir tímabilið í La Liga. Football-Espana hefur sett saman úrvalslið ársins í spænska boltanum.
Markvörður: Joan Garcia – Barcelona
Var magnaður á síðasta tímabili með Espanyol og bætti sig enn frekar í betra liði á þessu tímabili. Hans var saknað þegar hann var frá vegna meiðsla fyrir áramót.
Hægri bakvörður: Marcos Llorente – Atletico Madrid
Drifkraftur fyrir Madrídinga og var öryggið uppmálað á tímabilinu.
Miðvörður: Marc Pubill – Atletico Madrid
Framúrskarandi í hjarta varnarinnar.
Miðvörður: Florian Lejeune – Rayo Vallecano
Þessi 34 ára miðvörður var gjörsamlega geggjaður á frábæru tímabili Vallecano.
Vinstri bakvörður: Carlos Romero – Espanyol
Klárlega besti vinstri bakvörður tímabilsins, með sex stoðsendingar og þrjú mörk. Öflugur sóknarlega og hefur bætt sig varnarlega.
Miðjumaður: Pedri Gonzalez – Barcelona
Takturinn í spilamennsku Barcelona. Helmingur tapleikja Barcelona komu þegar hann var ekki í byrjunarliðinu.
Miðjumaður: Luis Milla – Getafe
Risastór ástæða þess að Getafe náði Evrópusæti. Tíu stoðsendingar í liði sem skoraði bara 32 mörk. Að auki markahæstur í liðinu með sex mörk.
Miðjumaður: Fermín Lopez – Barcelona
Var notaður í ýmsum stöðum og var heldur betur mikilvægur hlekkur í liði Börsunga. Steig upp þegar samherjar hans voru að glíma við meiðsli.
Sóknarmaður: Lamine Yamal – Barcelona
Kom alls að 42 mörkum í 45 leikjum í öllum keppnum. Það eru gríðarlegar kröfur gerðar á þennan hæfileikaríka leikmann.
Sóknarmaður: Vedat Muriqi – RCD Mallorca
Þrátt fyrir svakalega frammistöðu tókst honum ekki að koma í veg fyrir fall Mallorca. Skoraði 23 mörk og kom að yfir helmingi marka liðsins
Sóknarmaður: Kylian Mbappe – Real Madrid
Nokkuð kaflaskipt tímabil en fyrri hluta tímabils skoraði hann yfir helming marka liðsins. Endaði með 42 mörk og sjö stoðsendingar í 44 leikjum á tímabilinu.
Stjórinn: Inigo Perez – Rayo Vallecano
Hefur gert ótrúlega hluti með liðið.
Varamannabekkur
Aaron Escandell (m) - Real Oviedo
Andrei Ratiu - Rayo Vallecano
Pau Cubarsi - Barcelona
Eric Garcia - Barcelona
German Valera - Elche
Arda Guler - Real Madrid
Koke - Atletico Madrid
Pablo Fornals - Real Betis
Antoine Griezmann - Atletitco Madrid
Carlos Espi - Levante
Vinicius Junior - Real Madrid

