Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
   lau 30. maí 2026 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Nógu erfitt án þess að gera eitthvað svona bull"
Mynd: EPA
Steven Gerrard, fyrrum leikmaður Liverpool, gagnrýndi Eberechi Eze eftir tap Arsenal gegn PSG í úrslitum Meistaradeildarinnar.

Leikurinn fór alla leið í vítaspyrnukeppni en Eze klikkaði á öðru víti Arsenal. Hann hikaði í átt að boltanum og skaut framhjá.

„Hugsaðu um stærð leiksins, völlinn og andrúmsloftið. Þetta er nógu erfitt án þess að gera eitthvað svona bull. Settu fótinn í gegn, treystu á tæknina þína," sagði Gerrard en sagði síðar að hann virði alla sem stíga upp og taka vítaspyrnu við þessar aðstæður.

David Raya varði þriðja víti PSG frá Nuno Mendes í kjölfarið en Gabriel klikkaði á fimmta víti Arsenal og þá voru úrslitin ráðin.
Slapp
banner