30.06.06 - 08:18
Guðmundur Dagur Ólafsson
Pernia til Atletico Madrid (Staðfest)

Pernia er farinn til Atletico Madrid

Mynd: Getty Images

Pernia er farinn til Atletico Madrid

Mynd: Getty Images
Atletico Madrid hafa keypt spænska vinstri bakvörðinn, Mariano Pernia, frá Getafe og gerir hann fjögurra ára samning við félagið.
"Ég er hæstánægður með að hafa samið við eitt af stærstu félögum Spánar og jafnvel í heiminum," sagði Pernia á blaðamannafundi í gær. "Þar sem þetta er stórt félag þá er ætlast til þess að það vinni titla en svoleiðis pressa hvetur mig bara áfram."
Pernia, sem er 29 ára gamall, fékk tvöfalt ríkisfang í vetur en hann er upphaflega frá Argentínu. Hann var kallaður inn í spænska landsliðið fyrir hinn meidda Asier del Horno og spilaði 4 af 5 leikjum liðsins. Hann skoraði 10 mörk á síðasta tímabili fyrir Getafe og var markahæsti leikmaður þeirra.
Atletico Madrid enduðu í 10.sæti í deildinni í vetur og voru forráðamenn liðsins ekki ánægðir með það og ráku þjálfarann Pepe Murcia og réðu Mexíkóan Javier Aguirre sem stjórnaði Osasuna á síðasta tímabili og kom þeim í Meistaradeildina.
Þeir hafa verið duglegir að kaupa leikmenn því auk Pernia hafa þeir fengið fjóra aðra leikmenn. Þeir keyptu hinn 18 ára gamla argentínumann Sergio Aguero á 14 milljónir punda en hann þykir mikið efni. Þá keyptu þeir Portúgalana Ze Castro og Costinha og gríska bakvörðinn Yourkas Seitaridis.