Fotbolti.net
30.06.07 - 06:00
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Luciano Galletti til Olympiakos (Staðfest)

Galletti í leik með Atletico Madrid

Galletti í leik með Atletico Madrid

Canon

Mynd: Getty Images

Grísku meistaranir Olympiakos hafa gengið frá kaupunum á argentíska kantmanninum Luciano Galletti frá Atletico Madrid og skrifaði hann undir fjögurra ára samning.
Galletti, sem er 27 ára gamall og hefur skorað þrjú mörk í þrettán landsleikjum fyrir Argentínu, kemur frá Atletico Madrid þar sem hann hefur spilað síðustu tvö tímabil.

Áður hafði hann spilað í fjögur ár með Real Zaragoza auk þess að hafa spilað með Estudiantes, Parma og Napoli.

,,Ég er mjög ánægður og ég vil þakka bæði Olympiakos og Atletico Madrid fyrir þetta tækifæri,” sagði Galletti.

Heimild: AFP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.