30.06.07 - 14:35
Magnús Már Einarsson
Jens Elvar lánaður í Þrótt (Staðfest)

Jens í leik með Fjarðabyggð fyrr í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jens í leik með Fjarðabyggð fyrr í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Jens Elvar Sævarsson sem hefur verið á láni hjá Fjarðabyggð í sumar frá Fylki er farinn í annað fyrstudeildarlið á láni, uppeldisfélag sitt Þrótt.
Jens Elvar sem getur einnig leikið á miðjunni fór til Fjarðabyggðar á láni í upphafi sumars en hann lék sinn síðasta leik með liðinu í bili að minnsta kosti í 3-0 sigri á KA í gær.
Jens sem verður 27 ára á árinu hefur leikið alla leiki átta leiki Fjarðabyggðar í fyrstu deildinni í sumar.
Hann hefur hins vegar ákveðið að fara aftur í sitt gamla félag Þrótt og er hann þegar kominn með leikheimild sem þýðir að hann getur spilað gegn Fjölni í níundu umferð fyrstu deildarinnar næstkomandi mánudagskvöld.