Fotbolti.net
30.06.07 - 19:55
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Ítalska deildin

Francesco Tavano til Livorno (Staðfest)

Tavano í leik með Empoli á sínum tíma

Tavano í leik með Empoli á sínum tíma

Canon

Mynd: Getty Images

Francesco Tavano hefur gengið til liðs við ítalska félagið Livorno í láni frá spænska félaginu Valencia.
Tavano gekk til liðs við Valencia frá Empoli árið 2006 þar sem hann skoraði 38 mörk á tveimur tímabilum og var hann orðaður við flest af stærstu félögum Ítalíu.

Hann tókst hins vegar ekki að sanna sig hjá Valencia og fór þaðan til Roma í láni í janúar þar sem hann skoraði tvö mörk í fjórtán leikjum.

Þá greindi Livorno einnig frá því að þeir hafa fengið til sín sóknarmanninn Fausto Rossini frá Catania, Emanuele Filippini hjá Bologna og Massimo Loviso.

Heimild: Channel 4

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.