Trú Liverpool varðandi kaup á Szoboszlai eykst til muna

Dominik Szoboszlai.

Mynd: EPA

Dominik Szoboszlai.

Mynd: EPA
Það hefur færst aukin trú í Liverpool að félaginu takist að landa ungverska miðjumanninum Dominik Szoboszlai frá RB Leipzig í sumar.
Þetta kemur fram hjá The Athletic í dag.

Liverpool hitti fulltrúa hins 22 ára gamla Szoboszlai fyrr í þessari viku og vonast til að ná að kaupa hann í sumar. Eftir fundinn leit út fyrir að það yrði gríðarlega flókið að kaupa hann en David Ornstein, fréttamaður The Athletic, segir að dínamíkin sé núna önnur og trúin er meiri hjá Liverpool.
Það er talið að riftunarverðið í samningi Szoboszlai - sem er 70 milljónir evra - muni renna út í dag en viðræðurnar munu halda áfram þrátt fyrir það. Ítalski íþróttafréttamaðurinn Fabrizio Romano segir að viðræðurnar séu á góðum stað. Leikmaðurinn er mjög spenntur fyrir því að fara til Liverpool.
Szoboszlai er lykilmaður hjá Leipzig en á nýliðnu tímabili spilaði hann 48 leiki og skoraði tíu mörk. Hann er líka landsliðsmaður Ungverjalands en hann eyðilagði eftirminnilega möguleika Íslands á því að komast á Evrópumótið 2021.
Szoboszlai er mjög ofarlega á lista Liverpool sem hefur nú þegar gengið frá kaupum á á argentínska miðjumanninum Alexis Mac Allister frá Brighton í sumar.

???? Liverpool are pushing ahead with a deal to sign Dominik Szoboszlai. Looked difficult but dynamic has shifted + #NUFC out - now appears #LFC confident it can get done, amid talks with #RBLeipzig over Fabio Carvalho (set to complete today) @TheAthleticFC https://t.co/kTrcl7kWol
— David Ornstein (@David_Ornstein) June 30, 2023