Fotbolti.net
30.06.26 - 04:07
Brynjar Ingi Erluson

HM: Afríkumeistararnir slógu Hollendinga út eftir magnaðan spennutrylli

Marokkó mætir Kanada í 16-liða úrslitum

Marokkó mætir Kanada í 16-liða úrslitum

Canon

Mynd: EPA

Holland 1 - 1 Marokkó (2-3 eftir vítakeppni)
1-0 Cody Gakpo ('72 )
1-1 Issa Diop ('90 )
Marokkó kastaði Hollandi úr leik í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins á Estadio BBVA-leikvanginum í Monterrey í Mexíkó í nótt. Aftur þurfti vítaspyrnukeppni til að skera úr um hvort liðið færi áfram og þar klikkuðu Hollendingar á þremur vítum.

Spennan var nánast áþreifanleg í upphafi leiks.

Mikill hiti var í mönnum og það var Marokkó sem byrjaði betur. Hollendingar unnu sig þó aðeins betur inn í leikinn þegar leið á fyrri hálfleikinn.

Marokkó fékk betri færin fyrir hlé. Neil El Aynaoui átti hörkuskalla á 20. mínútu sem Bart Verbruggen þurfti að hafa sig allan við að verja áður en hann stýrði föstu skoti Achraf Hakimi aftur fyrir endamörk.

Harkan hélt áfram. Azzedine Ounahi fór í gróft brot á Jan Paul van Hecke þegar hann stökk upp í Hollendinginn og setti olnbogann í andlit hans. Van Hecke mátti þola ýmislegt því tólf mínútum síðar fékk hann takka í höfuðið svo fossblæddi, en hann hélt ótrauður áfram.

Á 44. mínútu átti Micky van de Ven bestu tilraun Hollendinga í fyrri hálfleiknum þegar hann lét vaða af um 30 metra færi, en Yassine Bounou bauð upp á stórbrotna markvörslu.

Marokkó var hársbreidd frá því að taka forystuna undir lok hálfleiksins. Aukaspyrna barst alla leið á fjærstöngina þar sem Ismael Saibari var gjörsamlega aleinn, en boltinn skoppaði rétt framhjá honum.

Staðan var markalaus í hálfleik en Hollendingar þurftu að stilla saman strengi sína ef þeir ætluðu sér lengra í keppninni.

Hakimi var nálægt því að skora á 52. mínútu þegar hann fékk sendingu í gegn hægra megin og þrumaði boltanum í þverslána. Van de Ven bjargaði síðan frábærlega í teignum aðeins fáeinum mínútum síðar.

Eftir síðari vatnspásuna skoruðu Hollendingar. Wout Weghorst var nýkominn inn á sem varamaður þegar hann skallaði langa sendingu Verbruggen áfram í hlaupaleið Crysencio Summerville. Hann féll við en náði að pota boltanum til hliðar á Cody Gakpo, sem setti boltann framhjá Bounou og í netið.

Gakpo lagðist strax í grasið og hágrét, enda hafði hann gengið í gegnum erfiða viku. Unnusta hans missti fóstur, sem hafði eðlilega mikil áhrif á þau bæði. Hann tileinkaði henni og barninu markið með því að benda til himins.

Hollendingar vörðust af hjarta á lokamínútunum. Van Dijk átti góða björgun en Marokkó hélt áfram að þjarma að þeim og uppskar jöfnunarmark í upphafi uppbótartíma.

Chemsdine Talbi átti þá glæsilega fyrirgjöf inn á teiginn á Issa Diop, sem þrumuskallaði boltann efst í hægra hornið. Van Dijk virtist gleyma sér algjörlega í dekkningunni og Diop nýtti sér það til fulls.

Markið fleytti Marokkó í framlengingu og það var sanngjarnt miðað við gang mála.

Á sjöundu mínútu framlengingarinnar átti Verbruggen eina bestu vörslu mótsins. Soufiane Rahimi fékk boltann inni í teignum, lék á varnarmann og var kominn í dauðafæri af örstuttu færi. Hann stýrði boltanum niður í vinstra hornið en Verbruggen gerði sig stóran, varði boltann fyrst með hnénu og síðan með hægri hendinni. Risastór varsla hjá Brighton-manninum og jafnvel varsla mótsins.

Leikurinn bauð upp á mikla skemmtun og á köflum var eins og um átta liða úrslit eða jafnvel undanúrslit væri að ræða. Bæði lið áttu sterka frammistöðu en Marokkó var þó betra liðið þegar á heildina er litið.

Síðari hluti framlengingarinnar bauð ekki upp á mörg færi en andrúmsloftið var áfram spennuþrungið. Mörkin urðu hins vegar ekki fleiri og því þurfti vítaspyrnukeppni til að skera úr um hvort liðið færi áfram.

Marokkómenn tóku bæn fyrir vítaspyrnukeppnina og stuðningsmenn þeirra létu vel í sér heyra með „Húh-inu“. Því fylgir mikil orka og hún virtist smitast yfir í leikmennina, sem höfðu betur og sendu Hollendinga heim.

Vítaspyrnukeppnin byrjaði líflega. Teun Koopmeiners skoraði af öryggi í hægra hornið áður en Neil El Aynaoui skaut í þverslá og yfir. Justin Kluivert, sem er yfirleitt mjög öruggur á punktinum, skaut síðan í stöngina og næsta víti var hreinlega grátlegt fyrir Verbruggen.

Hann varði vítaspyrnu Rahimi en boltinn fór í fótinn á honum og lak þaðan í netið. Lygilegt atvik sem átti eftir að reynast dýrkeypt.

Weghorst var öruggur í næsta víti Hollendinga og þrykkti boltanum efst í vinstra hornið. Talbi skoraði síðan áður en Quinten Timber skaut framhjá. Achraf Hakimi, stærsta nafnið í liði Marokkó, setti sína vítaspyrnu í stöngina og allt var enn opið.

Summerville var fimmti maðurinn á punktinn hjá Hollendingum. Bounou var hins vegar nánast mættur í hornið áður en Summerville lét vaða og kýldi boltann frá. Djarft hjá Bounou en það virkaði.

Saibari, sem hefur verið magnaður með Marokkó á mótinu, steig þá á punktinn og sendi liðið áfram í 16-liða úrslitin með öruggri vítaspyrnu.

Ótrúlegur leikur og Marokkó hefur tryggt sér leik gegn Kanada í næstu umferð. Hollendingar eru hins vegar á heimleið.

Vítaspyrnukeppnin:
1-0 Teun Koopmeiners skorar
1-0 Neil El Aynaoui skýtur í slá
1-0 Justin Kluivert skýtur í stöng
1-1 Soufiane Rahimi skorar
2-1 Wout Weghorst skorar
2-2 Chemsdine Talbi skorar
2-2 Quinten Timber skýtur framhjá
2-2 Achraf Hakimi skýtur í stöng
2-2 Yassine Bounou ver frá Crysencio Summerville
2-3 Ismael Saibari skorar
Hollendingar fagna marki Cody Gakpo

Hollendingar fagna marki Cody Gakpo

Canon

Mynd: EPA

Leikurinn bauð upp á margar tæklingar og læti

Leikurinn bauð upp á margar tæklingar og læti

Canon

Mynd: EPA

HM: Afríkumeistararnir slógu Hollendinga út eftir magnaðan spennutrylli
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.