Fotbolti.net
30.06.26 - 12:33
Kári Snorrason

Þýskir miðlar æfir eftir tapið - „Hnignun einu sinni frábærrar fótboltaþjóðar“

„Önnur þýsk martröð.“

„Önnur þýsk martröð.“

Canon

Mynd: EPA

Fjórfaldir heimsmeistarar Þýskalands féllu óvænt úr leik í 32-liða úrslitum HM í gær er liðið tapaði fyrir Paragvæ í vítaspyrnukeppni.

Mikil vonbrigði hafa tekið við frá því að Þjóðverjar unnu heimsmeistaramótið árið 2014. Liðið féll úr leik í riðlakeppninni bæði 2018 og 2022, vonbrigðin voru ekki minni í ár eftir tap gærkvöldsins.

Þýskir fjölmiðlar skafa ekki utan af málunum í umfjöllun um leikinn og segja miðlarnir dökk ský yfir þýskum fótbolta.
Dagblaðið Bild sagði að Þýskaland hefði sýnt sannkallaða skelfingarframmistöðu stóran hluta leiksins. „Hægt. Leiðinlegt. Dauflegt. Önnur þýsk martröð,“ stóð m.a. í umfjöllun blaðsins.

Spiegel kallaði þetta „hnignun einu sinni frábærrar fótboltaþjóðar“ og bætti við: „Mistök Þýskalands á HM heita öðru nafni Nagelsmann.“

Sky Sport í Þýskalandi sagði að liðið hefði skort allt og nefndi þar hraða, hugmyndir og vilja. Leikmenn voru teknir fyrir og var hópurinn kallaður „misheppnaða kynslóðin“.

Julian Nagelsmann, þjálfari liðsins, ætlar ekki að segja af sér en á könnun á síðu Sky Sports í Þýskalandi vildu 93 prósent kjósenda að Nagelsmann yrði látinn fara.
Óvinsæll í Þýskalandi.

Óvinsæll í Þýskalandi.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.