Fotbolti.net
30.06.26 - 11:06
Innkastið

Viðvörunarbjöllur sem hringdu þegar Hemmi var ráðinn

Hermann var látinn taka poka sinn í gær.

Hermann var látinn taka poka sinn í gær.

Canon

Mynd: Valur

Hermann Hreiðarsson var í gær sagt upp störfum sem þjálfari Vals. Valur er í fimmta sæti Bestu deildarinnar en liðið vann Þór á sunnudag, í síðasta leik Hermanns með stjórnartaumana.

Chris Brazell mun stýra liðinu út tímabilið og þá tekur Halldór Árnason við liðinu til frambúðar eftir tímabil.

Rætt var um brottrekstur Hermanns í Innkastinu á Fótbolta.net í gærkvöld.
Hemmi rekinn frá Val (Staðfest) - Dóri Árna tekur við eftir tímabilið
TENGT EFNI

Hemmi rekinn frá Val (Staðfest) - Dóri Árna tekur við eftir tímabilið

„Það kemur ekkert endilega á óvart að hann sé látinn fara. Ef maður horfir á stöðuna í deildinni og hvernig frammistöðurnar hafa verið. Maður var búinn að heyra að þetta gæti farið að gerast hjá þeim,“ sagði Valur Gunnarsson og hélt áfram.

„Svo vinna þeir í gær sannfærandi, vissulega á móti slakasta liði deildarinnar, en það að hann hafi verið látinn fara á þessum tímapunkti kemur á óvart. Þá spyr maður sig hvort þeir höfðu verið hræddir um að missa Dóra einhvert annað og vildu klára þetta af sem fyrst,“ sagði Valur Gunnarsson.

Því næst var rætt um orð Styrmis Þórs Bragasonar, formanns fótboltadeildar Vals, sem sagði í viðtali við Aron Guðmundsson á Sýn, sig hafa farið að skoða þjálfarabreytingar þegar hann settist í formannsstólinn í maí. Hann sagði þó ekki hafa verið mistök að ráða Hermann í vetur. „Auðvitað eru það mistök þegar þeir ráða hann og hann endist bara í nokkra mánuði. Auðvitað telja þeir það,“ sagði Elvar Geir.

Viðvörunarbjöllur sem hringdu
Hermann tók við liðinu í vetur og var hann fenginn frá HK. Þar áður hafði hann stýrt ÍBV, Þrótti Vogum og Fylki.

„Það voru margar viðvörunarbjöllur sem hringdu þegar Hemmi var ráðinn. Hemmi hefur náð flottum árangri á þjálfaraferlinum en hann í Val, og í þá vegferð sem þeir voru að fara í - maður sá ekki þessa jöfnu ganga upp. Síðan kemur það á daginn að þetta gekk ekki upp,“ sagði Haraldur Örn.

„Svo er annað sem hringdi viðvörunarbjöllum og það var þegar Chris Brazell var ráðinn aðstoðarþjálfari. Þessi uppsetning að hann hafi verið munstraður sem þjálfari og Hemmi átti að vera andlitið. Nú er Chris tekinn við stjórnartaumunum og stýrir liðinu út tímabilið. Þetta er furðuleg staða, er ekki ábyrgð hans jafnmikil og hjá Hemma?“ Spurði Elvar Geir og Valur Gunnarsson tók orðið.

„Menn sáu í hvað stefndi þegar Brazell var ráðinn. Það voru margir sem sögðu að það myndu ekki líða margar umferðir þangað til að hann tæki við liðinu,“ kom jafnframt fram í þættinum.
Chris Brazell og Halldór Árnason.

Chris Brazell og Halldór Árnason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Unnu Þórsara á sunnudag.

Unnu Þórsara á sunnudag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Í 5. sæti með 19 stig.

Í 5. sæti með 19 stig.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - Hemmi rekinn, Akureyri í frjálsu falli og Blikar nálgast bikar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.