30.07.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Gregory Vignal til Southampton á láni (Staðfest)

Vignal í leik með Portsmouth.

Mynd: Getty Images

Vignal í leik með Portsmouth.

Mynd: Getty Images
Southampton hefur fengið vinstri bakvörðinn Gregory Vignal að láni í eitt ár frá franska félaginu Lends.
Liverpool keypti þennan 26 ára gamla leikmann frá Montpelier á 500 þúsund pund árið 2000. Hann fór síðan meðal annars til Portsmouth og Rangers á láni áður en hann hélt aftur til heimalandsins.
,,Ég er ánægður með að vera kominn aftur í enska boltann. George Burley (stjóri Southampton vildi mig sem er mikilvæt fyrir mig," sagði Vignal.
,,Ég hef gert lánssamning með möguleika á kaupum þannig að ef við förum upp get ég kannski verið áfram," bætti hann við.

Heimild: BBC