30.07.07 - 15:53
Magnús Már Einarsson
Hörður Magnússon í Völsung (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Völsungur úr annarri deild hefur fengið sóknarmanninn Hörð Magnússon frá HK á láni út tímabilið en hann hefur ekki leikið með Kópavogsliðinu í sumar þar sem hann hefur verið að jafna sig af meiðslum.
Hörður lék fjóra leiki með Ými, B-liði HK í sumar en hann er kominn með leikheimild hjá Völsungi og getur því leikið með liðinu gegn Magna í annarri deildinni á miðvikudagskvöldið.
Hörður er annar sóknarmaðurinn sem Völsungur fær á aðeins nokkrum dögum en Einar Guðnason kom til liðsins fyrir helgi.
Bandarísku sóknarmennirnir Rodney Perry og Uche Asika fóru til Bandaríkjanna til að fá endurnýjun á dvalarleyfi í byrjun mánaðarins en óvíst er hvort að þeir spili meira með Völsungi í sumar.
Að sögn Guðbjarts Ellerts Jónssonar formanns knattspyrnudeildar Völsungs er ólíklegt að Rodney Perry muni koma meira við sögu á leiktíðinni en óvíst er með Uche Asika.