Fotbolti.net
30.07.18 - 21:44
Ísak Máni Wíum

Eddi: Það er minn stíll að vera fastur fyrir

Auglýsing
Eddi: Það er minn stíll að vera fastur fyrir
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Þetta var mjög mikilvægur sigur, sérstaklega eftir tapið gegn Breiðablik.\"

Sagði Eddi Gomes leikmaður FH eftir 1-0 sigur liðsins gegn Fjölni í kvöld.
Þetta var ekki fallegt en við fengum stigin þrjú og það er það sem telur svo við erum mjög sáttir.\"

Eddi var út um allan völl lungan af leiknum og áttu sóknarmenn Fjölnis ekki roð í líkamlegan styrk hans.

Það er minn stíll að vera fastur fyrir og líkamlega sterkur. Ég er að komast í form svo það er gott að vera 100%.\"

Eddi komst í nokkur álitleg færi en lukkudísirnar voru ekki með honum í liði í þetta sinn.

Ég er smá vonsvikinn að hafa ekki náð inn marki. Við hefðum átt að loka leiknum miklu fyrr, kannski verð ég heppinn næst.\"

Næsti leikur FH er strax á fimmtudaginn gegn Hapoel Haifa frá Ísrael í forkeppni Evrópudeildarinnar. Eftir góð úrslit á útivelli nægir FH að halda markinu sínu hreinu til að komast áfram.

Það er mikilvægt að ná að halda markinu hreinu, við þurfum að hugsa vel um okkur . Vonandi náum við að vinna á fimmtudaginn eða gera 0-0 jafntefli svo við komumst áfram í næstu umferð.\"

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.