29.07.26 - 22:27
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jón Óli: Stórkostlegt framlag hjá ÍBV stúlkunum
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV skoraði dramatískt jöfnunarmark gegn FH í Bestu deild kvenna í kvöld eftir að hafa lent tveimur mörkum undir. Fótbolti.net ræddi við Jón Ólaf Daníelsson, þjálfara ÍBV, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: ÍBV 2 - 2 FH
„Maður lítur á þetta sem unninn leik, að vera 2-0 undir og jafna. Þetta var stórkostlegt framlag hjá ÍBV stúlkunum. Ég er virkilega stoltur af mínu liði," sagði Jón Óli.
Liðið spilaði mun betur í seinni hálfleik á móti vindi.
„Það var eitthvað hökt á þessu. Sem betur fer gekk þetta gegn vindinum."
Það var mikil breyting á liðinu eftir að Allison Lowrey kom inn á. Hún skoraði sigurmarkið.
„Ég var að hvíla hana aðeins og fá hana inn síðustu 30 mínúturnar. Hún hefur alltaf byrjað og verið tekin útaf. Ég ákvað að breyta í dag og vildi fá Ágústu (Ágústa María Valtýsdóttir) aðeins í takt við liðið því við munum þurfa að rúlla á liðinu því það er nóg eftir af mótinu."