Fotbolti.net
29.07.26 - 22:25
Helgi Inguson

Valur í botnsætinu - „Þetta er bara grafalvarlegt"

Auglýsing
„Það er ótrúlega gaman í fótbolta þegar þú vinnur en mjög erfitt þegar þú nærð ekki úrslitum

„Það er ótrúlega gaman í fótbolta þegar þú vinnur en mjög erfitt þegar þú nærð ekki úrslitum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
„Mér líður skelfilega, þetta var mjög þungt tap," sagði Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, eftir tap gegn Fram á Lambhagavellinum. Eftir að hafa verið marki undir í hálfleik náðu Valskonur að jafna metin í byrjun síðari hálfleiks. Þá tók við tíu mínútna kafli þar sem Fram skoraði þrjú mörk og gerði út um leikinn.
Lestu um leikinn: Fram 4 - 1 Valur
„Eftir fyrri hálfleik sem ég var nokkuð sáttur með, þótt niðurstaðan hafi verið slök, þá fannst mér ég sjá flott Valslið inn á vellinum. Við komumst í stöður sem við hefðum getað gert betur úr. Þetta var bara hörkuleikur, fyrri hálfleikurinn," sagði Matthías um fyrri háfleikinn.

„Ég var nokkuð sannfærður um að við myndum jafna leikinn eftir ræðuna í hálfleik. Mér fannst hugarfarið þess eðlis, ég skynjaði að það væri eitthvað móment. Við gerum það og svo fáum við í minningunni klaufalegt mark á okkur. Eftir það, hvort það sé einhver 10 mínútna kafli, þá bara fer leikurinn."

Valur er nú án sigurs í sjö leikjum í röð. Liðið er í botnsæti deildarinnar, tveimur stigum frá öruggu sæti.

„Þetta er bara grafalvarlegt, við erum samt alveg meðvitaðar um það. Nú þarf maður bara leikmenn sem brenna fyrir þetta og eru tilbúnar að leggja allt á sig. Það þarf bara að berjast fyrir hverri einustu sekúndu leiksins," sagði Matthías að lokum.

Viðtalið í heild sinni má finna í spilaranum fyrir ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.