Fotbolti.net
29.07.26 - 22:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Guðni: Margir leikmenn FH-liðsins kunna ekki að loka leik

Auglýsing
Guðni: Margir leikmenn FH-liðsins kunna ekki að loka leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
FH gerði jafntefli gegn ÍBV í Eyjum í Bestu deild kvenna í kvöld. FH náði tveggja marka forystu en ÍBV jafnaði metin í blálokin. Fótbolti.net ræddi við Guðna Eiríksson, þjálfara FH, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: ÍBV 2 - 2 FH
„Ætli ÍBV sé ekki kryptónítið okkar. Við áttum að sjálfsögðu að vera búnar að klára þennan leik miðað við færin sem við fáum. Þetta er bara 'deja vu', liðin þurfa kannski ekki fleiri skot til að skora en þetta. Við þurfum ansi mörg til að koma boltanum inn," sagði Guðni.

„Við réðum illa við aðstæður, það er alltaf logn í Hafnarfirði. Við höndlum ekki þetta rok, kunnum ekki að spila í roki," sagði Guðni léttur.

Guðni var svekktur með færanýtingu liðsins í leiknum.

„Leikmenn þurfa að læra að loka leik. Margir leikmenn FH-liðsins kunna ekki að loka leik, þegar það eru tvær mínútur eftir er hægt að gera ýmislegt til að loka leik. Þær kunna það ekki og maður þarf að kenna þeim það," sagði Guðni.

„Þetta er skóli og við þurfum að taka einhvern lærdóm af þessum leik annars þróast maður ekki áfram sem leikmenn eða lið. Þetta er bara áfram gakk."

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Breiðablik16+2636
2FH15+2433
3Stjarnan16+626
4ÍBV15-224
5Grindavík/Njarðvík16-222
6Þór/KA15-218
7Þróttur R.15-418
8Fram16-1716
9Valur15-1313
10Víkingur R.15-1611
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.