Fotbolti.net
29.07.26 - 22:20
Sigurjón Árni Torfason

Brynjar: Héldum að hann væri heill og tilbúinn í slaginn

Auglýsing
Brynjar var svekktur eftir leik!

Brynjar var svekktur eftir leik!

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
Grindavík tók á móti Leikni Reykjavík á Stakkavíkurvelli í 16. umferð Lengjudeildar karla núna í kvöld. Leiknum lauk með 1-0 sigri heimamanna. Fótbolti.net var á staðnum og náðu tali af Brynjari eftir leik.
Lestu um leikinn: Grindavík 1 - 0 Leiknir R.
„Bara svekkjandi. Kannski frekar jafn leikur, þannig séð. Við byrjuðum aðeins betur í fyrri hálfleiknum en síðan átti Grindavík sín færi eftir horn og annað með vindinum seinna í hálfleiknum. En síðan einhvern veginn náum við ekki að gera nógu vel úr stöðunum okkar í seinni hálfleik og fáum svona allt of ódýrt mark í bakið."

Ólafur Íshólm var frábær í leiknum í dag og átti nokkrar mjög góðar markvörslur, og var að mörgu leiti lykillinn á því að Grindavík skoruðu ekki fleiri mörk.

„Já, við vorum það, þarna allavega einu sinni, einu sinni ef ekki tvisvar í fyrri hálfleik og einu sinni í seinni hálfleik. Lítið sem hann gat gert í markinu sjálfu, held ég, Óli var frábær, en það var mikið að eiga við, sérstaklega í hornum og aukaspyrnum, sem komu öll inn á markið." Sagði Brynjar þegar Fótbolti.net heyrði í honum eftir leik.

Núna hefur Leiknir tapað fjórum leikjum í röð í deildinni eftir ágætis byrjun á mótinu.

„Þegar stórt er spurt. Við höfum svo sem misst Marco í meiðsli sem var búinn að vera öflugur hjá okkur. Við höfum aðeins þurft að rótera í liðinu á köflum. Bara vegna smávægilegra meiðsla eða meiðsla í leik. Við þurfum að taka Adam út mjög snemma í dag til dæmis og hann var einhvern veginn búinn að vera fínn síðustu tvær vikur á æfingum og hélt maður. Og hann og við héldum að hann væri bara heill og tilbúinn í slaginn en það er eitthvað sem kom upp á. Það er aldrei gott að þurfa að gera skiptingu snemma. Það átti svo sem ekki að breyta ásýnd leiksins þannig það var bara ekki nógu gott af okkar hálfu í dag."

Í lok viðtals, sem sjá má í heild sinni í spilaranum efst, ræðir Brynjar um leikmannamál og segir að liðið verði að klára tímabilið almennilega.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.