30.08.05 - 06:38
Zvonimir Vukic til Portsmouth (Staðfest)

Portsmouth hafa gengið frá kaupunum á Zvonimir Vukic frá Úkraínska liðinu Shakhtar Donetsk fyrir óuppgefna upphæð. Vukic kemur frá Serbíu og Svartfjallalandi og var í tvö ár hjá Shaktar eftir að hafa spilað með Partizan Belgrade í heimalandi sínu.
,,Við höfum fengið sókndjarfan miðjumann sem er kærkomið fyrir liðið okkar" sagði Milan Mandaric stjórnarformaður Portsmouth á heimasíðu félagsins. ,,Auga hans fyrir marki andstæðinganna mun gera sóknarleik okkar beittari."
Á tíma sínum hjá Partizan Belgrade skoraði Vukic 53 mörk, þar af 22 mörk í 30 leikjum á einu tímabili. Hann er í landsliði Serbíu og Svartfjallalands sem mætir Litháen og Spáni í undankeppni HM nú í byrjun september.
Peter Storrie framkvæmdarstjóri Portsmouth hafði þessu við að bæta um Vukic: ,,Hann er leikmaðurinn sem við höfum verið að leita að og hefur sannað að hann veit hvar markið og þessvegna mun verða okkur mikilvægur. Við þurftum miðjumann sem skorar mikið og Zvonimir er okkar maður."