30.08.05 - 12:09
Hafliði Breiðfjörð
Allan Borgvardt til Viking Stavanger (Staðfest)

Allan Borgvardt er gríðarlega vinsæll í Hafnarfirðinum eftir þrjú farsæl ár með FH

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Daninn Allan Borgvardt er genginn í raðir Viking frá Stavanger í Noregi en hann skrifaði undir samning við félagið nú í morgun eftir að hafa komist í gegnum læknisskoðun. Samningurinn gildir til áramóta en norska félagið ætlar að taka ákvörðun fyrir 1. nóvember um hvort samið verði við hann til lengri tíma.
Allan Borgvardt var valinn besti leikmaður Íslandsmótsins á sínu fyrsta ári hjá FH 2003, en var nokkuð frá vegna meiðsla í fyrra. Hann hefur svo verðið besti leikmaður mótsins nú í sumar er FH rúllaði upp Íslandsmótinu og varð Íslandsmeistari eftir 15 umferðir.
Allan hafði leikið alla leiki FH í Landsbankadeildinni fram að leiknum gegn ÍA á sunnudag er hann var meiddur. Hann hafði skorað 13 mörk í þessum 15 leikjum og var markahæsti leikmaður deildarinnar ásamt Tryggva Guðmundssyni félaga sínum hjá FH sem nú á tækifæri á að fara uppfyrir hann í baráttu markahæstu manna og taka gullskóinn.
Á þremur tímabilum hjá FH skoraði hann 29 mörk í 43 leikjum í deild og er þriðji markahæsti leikmaður FH í efstu deild frá upphafi. Auk FH hefur hann leikið með AGF í Danmörku og Esjbjerg í Danmörku.