Fotbolti.net
30.08.05 - 16:07
Hafliði Breiðfjörð

Rúrik Gíslason til Charlton (Staðfest)

Rúrik Gíslason til Charlton (Staðfest)
Canon

Mynd: HK.is

Rúrik Gíslason framherji HK gengur í dag í raðir enska úrvalsdeildarfélagsins Charlton Athletic en hann skrifaði undir tveggja ára samning félagið nú fyrir um 10 mínútum síðan eftir að hafa undirgengist læknisskoðun í dag. Samningurinn er með möguleika á eins árs framlengingu.
Rúrik fer til Hollands með U19 ára landsliði Íslands en fer svo aftur til London á þriðjudag eða miðvikudag í næstu viku og þá tekur alvaran við. Rúrik sagði í skemmtilegu samtali við Fótbolta.net að hann hlakkaði mikið til að takast á við þetta krefjandi verkefni.

Rúrik er aðeins 17 ára gamall en þrátt fyrir það stór og sterkur framherji sem hefur gífurlega hæfileika með bolta. Hann hefur leikið með HK í 1. deildinni í sumar en hefur farið tvisvar til reynsluæfinga hjá Charlton í ágúst sem varð svo til þess að félagið gerði HK tilboð í hann.

Rúrik gekk í raðir Anderlecht í Belgíu í byrjun árs 2004 en sneri svo aftur í október þar sem hann var óánægður með þær aðstöður sem honum voru skapaðar hjá félaginu. Hann gekk því í raðir HK þar sem hann hefur spilað í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.