30.08.05 - 17:51
Magnús Már Einarsson
Bouma til Aston Villa (Staðfest)




Aston Villa hefur gengið frá kaupunum á vinstri bakverðinum Wilfred Bouma frá PSV Eindhoven á 3,5 milljónir punda. Bouma sem er 27 ára hefur gert þriggja ára samning við Villa en hann stóðst læknisskoðun hjá liðinu í dag.
Bouma sem er að fara í leiki með hollenska landsliðinu sagði við heimasíðu Villa:,,Stjórinn David O'Leary var stór ástæða þess að ég samdi við Villa. Hann gerði það klárt að hann hefur trú á mér og hæfileikum mínum. Það gefur mér sjálfstraust sem er mikilvægt fyrir mig."
,,Ég hafði góða tilfinningu fyrir Villa, þeir hafa sögu sem stórt félag og fólkið sem ég hef talað við hjá félaginu hafa verið mjög hjálpsöm. Það er þess vegna sem ég vel Villa."
,,Ég hafði góða tilfinningu fyrir Villa, þeir hafa sögu sem stórt félag og fólkið sem ég hef talað við hjá félaginu hafa verið mjög hjálpsöm. Það er þess vegna sem ég vel Villa."
