30.08.05 - 17:58
Magnús Már Einarsson
Viera til Villareal (Staðfest)

Kominn í Villarealbúninginn.


Kominn í Villarealbúninginn.

Markvörðurinn Sebastian Viera hefur gert fjögurra ára samning við Villareal en hann kemur til liðsins frá Nacional de Montevideo í Úrúgvæ. Viera sem er 22.ára var á leið til Arsenal fyrr í mánuðinum en þau félagaskipti gengu ekki upp.
Viera stóðst læknisskoðun hjá Villareal í gær og var kynntur sem nýr leikmaður liðsins í morgun. Hjá Villareal mun hann berjast við hinn 21 árs Mariano Barbosa um markvarðarstöðuna en sá síðarnefndi kom til Villareal frá argentínska liðinu Banfield í sumar.
Villareal ætlar því að vona að annar hvor þeir nái að fylla upp í skarðið sem Pepe Reina skyldi eftir sig er hann gekk til liðs við Liverpool í sumar.
Villareal ætlar því að vona að annar hvor þeir nái að fylla upp í skarðið sem Pepe Reina skyldi eftir sig er hann gekk til liðs við Liverpool í sumar.
