30.08.05 - 18:05
Magnús Már Einarsson
Karagounis til Benfica (Staðfest)




Benfica hefur fengið gríska miðjumanninn Giorgos Karagounis frá Inter Milan. Hinn 28 ára gamli Karagounis hefur gert þriggja ára samning við Benfica en ekki hefur kaupverðið á kappanum fengist uppgefið.
Ronald Koeman þjálfari Benfica hefur verið að leita að liðsstyrk en liðið hefur ekki byrjað verr í portúgölsku deildinni síðan 1977 en liðið hefur ekki skorað í fyrstu tveimur umferðunum og er aðeins með eitt stig.
Vissir þú að:
Karagounis skoraði fyrsta markið á EM 2004 þegar hann skoraði fyrir Grikkland gegn Portúgölum.
Vissir þú að:
Karagounis skoraði fyrsta markið á EM 2004 þegar hann skoraði fyrir Grikkland gegn Portúgölum.
