Fotbolti.net
30.08.06 - 14:07
Magnús Már Einarsson

Preston kaupir Mellor frá Liverpool (Staðfest)

Preston kaupir Mellor frá Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Preston í ensku fyrstu deildinni hefur keypt Neil Mellor framherja Liverpool fyrir óuppgefið fé og hefur leikmaðurinn gert þriggja ára samning við félagið.
Mellor sem er 23 ára hefur átt við hnémeiðsli að stríða undanfarin ár og aldrei náð að festa sig almennilega í sessi hjá aðalliðinu hjá Liverpool en síðari hluta síðustu leiktíðar var hann í láni hjá Wigan.

,,Neil er markaskorari og vonandi mun það halda áfram í þessu tilfelli. Hann er gríðar stór kaup. Hann hefur átt í meiðslavandræðum en við erum ánægðir með að hann er kominn yfir það og nú er þetta bara spurning um að byggja upp formið hans," sagði Peter Simpson stjóri Preston við heimasíðu félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.