Fotbolti.net
30.08.06 - 15:18
Hafliði Breiðfjörð

Pongolle til Recreativo (Staðfest)

Pongolle til Recreativo (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Florent Sinama Pongolle framherji Liverpool er genginn í raðir Recreativo Huelva á Spáni og gerir eins árs samning við félagið. Spænska félagið kaupir hann ekki heldur fær hann að láni í eitt ár frá Liverpool.
Pongolle sem er U21 árs landsliðsmaður Frakklands kom til Liverpool frá Le Havre í Frakklandi árið 2003. Hann var á láni hjá Blackburn Rovers á síðari hluta síðustu leiktíðar.

Recreativo komust í spænsku 1. deildina á síðustu leiktíð og leika því í efstu deild þar í landi á tímabilinu sem er að hefjast.

Þetta er í þriðja sinn í sögu félagsins sem þeir komast í efstu deild en þeir voru stigahæsta lið 2. deildarinnar á síðustu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.