Fotbolti.net
30.08.06 - 15:15
Þórður Már Sigfússon

Hannes Sigurðsson til Bröndby (Staðfest)

Hannes er genginn til liðs við Bröndby

Hannes er genginn til liðs við Bröndby

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hannes Sigurðsson er genginn í raðir danska úrvalsdeildarliðsins Bröndby frá enska fyrstu deildarliðinu Stoke City, en þetta var staðfest á heimasíðu enska félagsins rétt í þessu.
Hannes, sem er 22 ára gamall framherji, gekk til liðs við Stoke City frá norska úrvalsdeildarfélaginu Viking FK fyrir rúmu ári síðan en náði ekki að festa sig í sessi hjá félaginu.

Tony Scholes, framkvæmdarstjóri Stoke City, sagði í samtali við heimasíðu félagsins að þessi félagaskipti séu best fyrir alla aðila.
,,Þetta mun gera Hannesi gott og þetta eru góð viðskipti fyrir Stoke City.”

,,Við seldum hann vegna þess að hann var ekki inní myndinni hjá knattspyrnustjóranum. Það er best fyrir Hannes og félagið að hann leiti á önnur mið.

Eins og Fótbolti.net greindi frá í gær voru norsk og sænsk félög, og eitt úrvalsdeildarfélag í Belgíu einnig á eftir Hannesi.

Kaupverðið var ekki gefið upp.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.