Fotbolti.net
30.08.06 - 16:03
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Manuel Fernandes til Portsmouth (Staðfest)

Fernandes í leik með Benfica gegn Barcelona

Fernandes í leik með Benfica gegn Barcelona

Canon

Mynd: Getty Images

Portúgalski unglingalandsliðsmaðurinn Manuel Fernandes hefur gengið til liðs við Portsmouth frá Benfica á lánssamningi út tímabilið.
Harry Redknapp, stjóri Pompey, hefur verið á eftir þessum 20 ára gamla leikmanni í allt sumar og var hann nálægt því að ganga til liðs við þá í sumar fyrir 10 milljónir punda en hann féll svo á læknisskoðun.

Þrátt fyrir að vafi sé um líkamlegt form hans þessa stundina er búist við miklu af Fernandes sem hefur oft verið líkt við Claude Makelele á vellinum.

Fernandes eru sjöttu stóru kaup Redknapp í sumar en áður hafði hann keypt David James, Sol Campbell, Kanu, David Thompson og fengið Glen Johnson á láni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.