Fotbolti.net
30.08.06 - 16:47
Hafliði Breiðfjörð

Diawara til Charlton en Bolonos ekki (Staðfest)

Souleymane Diawara í baráttu við Jan Köller.

Souleymane Diawara í baráttu við Jan Köller.

Canon

Mynd: Getty Images

Charlton keyptu í dag Senegalann Souleymane Diawara frá Sochaux í Frakklandi á 3,7 milljónir punda. Diawara er miðvörður sem mun væntanlega berjast við Hermann Hreiðarsson um byrjunarliðsstöðuna hjá Charlton.
Hann er 27 ára gamall og lék áður með Le Havre áður en hann fór til Sochaux. Hann verður áttundu kaup Charlton í félagaskiptaglugganum.

,,Hann er leikmaður sem ég hef lengi haft mætur á sem topp varnarmanni," sagði Ian Dowie stjóri Charlton á vefsíðu félagsins. ,,Hann hefur frábæran hraða, góða hæfileika á boltanum og er mjög kraftmikill og mun henta vel í úrvalsdeildina."

Charlton staðfesti einnig í dag að Kosta Ríka maðurinn Cristian Bolonos muni ekki ganga í raðir félagsins þar sem honum var hafnað um atvinnuleyfi á Englandi í gærkvöld.

Dowie sagði að félagið myndi halda áfram sambandi við leikmanninn sem lék í tveimur af þremur leikjum Kosta Ríka á HM í sumar Hann var á reynslu hjá Liverpool í janúar
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.