Fotbolti.net
30.08.23 - 20:53
Anton Freyr Jónsson

Heimir Guðjóns ósáttur með varnarleikinn: Það er ekki hægt að bíða mikið lengur

Auglýsing
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH

Heimir Guðjónsson, þjálfari FH

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við vorum sjálfum okkur verstir í þessum leik. Mér fannst við spila vel í fyrri hálfleik, sköpuðum okkur góð færi. Bjargað á línu og eitthvað fleira en við erum náttúrulega eins og bara í flestum leikjum sjálfum okkur verstir." sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH eftir 0-3 tapið gegn KA í Bestu deild karla í kvöld en um var að ræða frestaðan leik sem átti að fara fram fyrr í sumar. 

„Við fáum á okkur mark þar sem er auðveldlega hægt að koma í veg fyrir með því að hreinsa boltann í burtu, erum ekki klárir í seinni boltann og svo missa tveir varmarmenn mann framhjá sér og komnir í yfirtölu og seinni markið er náttúrulega bara þannig að besti skallamaðurinn í KA liðinu (Elfar Árni) var búin að vera frír í einhverjar tíu sekúndur og það kann aldrei góðri lukku að stýra. 2-0 í hálfleik og mér fannst við ekkert ná að ógna þeim að neinu viti í seinni hálfleik og endanum bara sanngjarn sigur."

FH fékk nokkra mjög góða sénsa í stöðunni 0-0 til að komast yfir í leiknum en liðinu tókst ekki að koma boltanum yfir línuna í dag.

„Ég var ósáttur að ná ekki að klára færin en bara aðalega ósáttur við það að við fáum alltof mikið af mörkum á okkur og það er alveg sama hvað við spilum vel og ég meina KA fékk í fyrri hálfleik. Skoruðu tvö mörk og fengu eitt færi í leiknum. Eitt fast leikatriði og svo eina hornspyrnu og við fengum á okkur tvö mörk og það er náttúrulega bara búin að vera saga sumarsins, við missum einbeitinguna og erum ekki klárir og fáum alltof mikið af mörkum á okkur. Þú lendir alltaf í því að því að þurfa skora þrjú eða fjögur mörk til að vinna að vinna leiki og við þurfum að laga þetta. Það er búin 21 umferð og það er ekki hægt að bíða mikið lengur."

Staðan í hálfleik var 0-2 fyrir FH og var Heimir spurður hvernig hann hafi lagt upp síðari hálfleikinn.

„Ég vildi ekki breyta í hálfleik. Mér fannst bara leikmenn vera leggja sig fram og vildu gera hlutina vel og þessvegna tókum við ákvörðun um að gera engar breytingar en við vorum ekki sjálfum okkur líkir í síðari hálfleik og eftir að KA komst í 0-3 þá snérist þetta bara um að lágmarka skaðann."

Viðtalið við Heimi má sjá í sjónvarpinu hér að ofan þar sem Heimir var spurður út í lokaumferðina í hefbundinni deildarkeppni en framundan er tvískipting á Bestu deildinni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.