Íslandsmótinu er lokið, ekki verða leiknir fleiri leikir á keppnistímabilinu 2020. Þetta var staðfest með tilkynningu frá KSÍ rétt fyrir klukkan sex í dag.
Margir eru ósáttir við þessa ákvörðun og er Steven Lennon einn þeirra. Lennon var markahæsti leikmaður deildarinnar og átti mjög góða möguleika á því að slá markametið í efstu deild.
Lennon var kominn með sautján mörk í átján leikjum, fjórir leikir eftir til að skora tvö mörk.
Lennon tjáði sig í kjölfar ákvörðunnar KSÍ í dag. „Þetta er kjaftæði á hæsta stigi," skrifaði Skotinn.

This is number 1 bullshit
— StevenLennon (@StevenLennon_7) October 30, 2020
Ég vorkenni Steven Lennon núna.
— Garðar Ingi Leifsson (@gardarleifs) October 30, 2020
Hræðilegt fyrir Íslenskan fótbolta en hugur minn er mest hjá Steven Lennon vini mínum sem var á leiðinni að splúndra markametinu #Machine
— Andri Júlíusson (@andrijull) October 30, 2020
Athugasemdir