Fotbolti.net
14.10.26 - 12:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Átta aðrir Man Utd leikmenn sem skutu á félagið

Lisandro Martinez.

Lisandro Martinez.

Canon

Mynd: EPA

Lisandro Martínez vakti mikla athygli með ummælum sínum um Manchester United eftir tap liðsins gegn Atlético Madrid í Meistaradeildinni í gær. Hann er þó langt frá því að vera fyrsti leikmaðurinn sem gagnrýnir félagið opinberlega.

Mirror tók saman lista yfir átta aðra leikmenn sem hafa skotið á félagið opinberlega.
Klefinn hjá Man Utd deilir skoðun Martínez
TENGT EFNI

Klefinn hjá Man Utd deilir skoðun Martínez

Jadon Sancho - 2023
Jadon Sancho lenti í útistöðum við Erik ten Hag, þáverandi stjóra Manchester United, í september 2023. Ten Hag gagnrýndi þá frammistöðu Sancho á æfingum opinberlega og valdi hann ekki í leikmannahópinn gegn Arsenal. Sancho svaraði fyrir sig á samfélagsmiðlum og sagði ummæli stjórans ósönn. „Ég hef verið gerður að blóraböggli í langan tíma og það er ekki sanngjarnt,“ skrifaði hann. Sancho neitaði að biðjast afsökunar og var í kjölfarið haldið frá aðalliðinu. Hann fór á láni til Borussia Dortmund í janúar 2024 og lék síðar með Chelsea og Aston Villa áður en samningur hans við United rann út sumarið 2026.

Cristiano Ronaldo - 2022
Cristiano Ronaldo skoraði 27 mörk yfir seinni dvöl sína hjá Manchester United en hennar verður þó fyrst og fremst minnst fyrir athyglisvert viðtal hans við Piers Morgan í nóvember 2022. Ronaldo var ósáttur við Erik ten Hag, þáverandi stjóra United, eftir að hafa misst sæti sitt í byrjunarliðinu og gagnrýndi félagið harðlega. „Mér fannst ég svikinn,“ sagði Portúgalinn og beindi meðal annars spjótum sínum að Glazer-fjölskyldunni, eigendum félagsins. Hann sagði jafnframt að engar framfarir hefðu orðið hjá United frá því að Sir Alex Ferguson hætti og sagðist ekki bera virðingu fyrir Ten Hag þar sem stjórinn sýndi honum ekki virðingu. Samningi Ronaldo við United var rift skömmu síðar og hann gekk í kjölfarið til liðs við Al-Nassr í Sádi-Arabíu, þar sem hann leikur enn.

Dean Henderson - 2022
Dean Henderson gagnrýndi Manchester United harðlega sumarið 2022 eftir að hafa verið lánaður til Nottingham Forest. Markvörðurinn taldi að félagið hefði svikið loforð um að hann yrði aðalmarkvörður liðsins í stað David de Gea. „Þetta hafa líklega verið erfiðustu tólf mánuðirnir á ferlinum. Mér var sagt að ég myndi snúa aftur sem aðalmarkvörður en enginn stóð við það,“ sagði Henderson í viðtali við talkSPORT. Hann sagðist hafa hafnað nokkrum góðum lánstilboðum vegna loforðanna og kallaði það „glæpsamlegt“ að hafa sóað heilu ári á varamannabekknum. Henderson gekk til liðs við Crystal Palace árið 2023 og hefur síðan unnið enska bikarinn, Sambandsdeildina og Samfélagsskjöldinn með félaginu.

Paul Pogba - 2020
Paul Pogba varð dýrasti fótboltamaður í heimi þegar hann sneri aftur til Manchester United frá Juventus árið 2016, en dvölin einkenndist að nokkru leyti af deilum. Árið 2018 gagnrýndi hann leikaðferð José Mourinho og sagði að United ætti að sækja til sigurs á Old Trafford. Tveimur árum síðar sendi hann félaginu tóninn á meðan hann var í landsliðsverkefni með Frakklandi, eftir að hafa misst sæti sitt í byrjunarliðinu undir stjórn Ole Gunnar Solskjær. Pogba lýsti því hvernig stemningin í franska landsliðinu væri allt önnur en hjá United. „Franska landsliðið er eins og ferskur andblær. Hópurinn er einstakur, þetta er töfrum líkast. Við hlæjum, skemmtum okkur og erum eins og fjölskylda,“ sagði hann. Pogba yfirgaf United árið 2022 og sneri aftur til Juventus. Hann féll síðar á lyfjaprófi og fékk upphaflega fjögurra ára bann, sem var stytt í 18 mánuði. Hann gekk til liðs við Mónakó árið 2025 en er nú án félags.

Romelu Lukaku - 2019
Romelu Lukaku gagnrýndi Manchester United opinberlega sumarið 2019 þegar framtíð hans hjá félaginu var í óvissu. Belgíski framherjinn hafði gengið til liðs við United frá Everton fyrir 75 milljónir punda árið 2017 en var farinn að fá minna hlutverk undir stjórn Ole Gunnar Solskjær. Í viðtali við hlaðvarp NBA-leikmannsins Josh Hart sagði Lukaku að hann hefði ekki fundið fyrir stuðningi félagsins þegar sögusagnir um framtíð hans fóru á kreik. „Það var margt sagt sem mér fannst félagið ekki standa með mér í. Ég beið í þrjár til fjórar vikur eftir því að einhver kæmi fram og eyddi þessum sögusögnum, en það gerðist ekki,“ sagði hann. Lukaku vildi að félagið hefði lýst yfir stuðningi við sig og sagt að hann myndi berjast fyrir sæti sínu. Viðtalið var tekið aðeins nokkrum dögum áður en hann gekk til liðs við Inter Milan í ágúst 2019.

Wayne Rooney - 2010
Wayne Rooney er goðsögn hjá Manchester United og vann fimm Englandsmeistaratitla með félaginu, en í október 2010 virtist hann á leið frá Old Trafford. Rooney lýsti þá yfir vilja til að yfirgefa félagið og efaðist um metnað þess til framtíðar. Hann sagði að David Gill, framkvæmdastjóri United, hefði ekki veitt sér þær tryggingar sem hann óskaði eftir varðandi styrkingu leikmannahópsins. „Fyrir mér snýst þetta allt um að vinna titla, eins og félagið hefur alltaf gert undir stjórn Sir Alex Ferguson,“ sagði Rooney og lagði áherslu á að United yrði að geta laðað til sín bestu leikmenn heims. Aðeins tveimur dögum síðar bauð félagið honum nýjan samning sem hann skrifaði undir. Rooney lék áfram með United í sjö ár áður en hann sneri aftur til Everton. Síðar lék hann með D.C. United og Derby County áður en hann lagði skóna á hilluna.

Carlos Tevez - 2009
Carlos Tevez kom til Manchester United á tveggja ára lánssamningi frá West Ham árið 2007 og myndaði öflugt sóknartríó með Wayne Rooney og Cristiano Ronaldo. Þegar hann hafði ekki enn fengið tilboð um varanlegan samning árið 2009 lýsti Argentínumaðurinn yfir óánægju sinni opinberlega. „Ég hef beðið í eitt og hálft ár eftir því að félagið geri mér tilboð. Ég veit ekki hver framtíð mín er,“ sagði Tevez og gagnrýndi félagið fyrir að draga málið á langinn. Hann sagðist vilja yfirgefa United með góðu ef ekki yrði af samningi. Það fór svo að Tevez gekk til liðs við erkifjendurna í Manchester City í júlí 2009, þar sem hann lék til ársins 2013.

Roy Keane - 2005
Roy Keane lét allt flakka í upptöku fyrir sjónvarpsstöð félagsins í október 2005. United hafði þá tapað 4-1 fyrir Middlesbrough og Keane gagnrýndi bæði liðsfélaga sína og félagið harðlega. Upptakan var aldrei sýnd á MUTV en lak í fjölmiðla í byrjun nóvember. „Ég bjóst við svona úrslitum. Ég er orðinn þreyttur á að þurfa að segja þetta aftur og aftur og leikmennirnir eru orðnir þreyttir á að hlusta á mig. Þeir hafa brugðist félaginu, stjóranum og stuðningsmönnunum,“ sagði Keane. Hann gagnrýndi meðal annars Darren Fletcher og Kieran Richardson og beindi spjótum sínum að Rio Ferdinand vegna launa hans og frammistöðu. Keane fékk 50000 punda sekt vegna málsins og lék aldrei aftur fyrir United. Hann yfirgaf félagið í nóvember 2005 eftir 12 ára veru á Old Trafford.
Cristiano Ronaldo.

Cristiano Ronaldo.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Paul Pogba og Ole Gunnar Solskjær.

Paul Pogba og Ole Gunnar Solskjær.

Canon

Mynd: EPA

Romelu Lukaku.

Romelu Lukaku.

Canon

Mynd: EPA

Wayne Rooney.

Wayne Rooney.

Canon

Mynd: EPA

Carlos Tevez fór til Manchester City.

Carlos Tevez fór til Manchester City.

Canon

Mynd: EPA

Roy Keane var lengi fyrirliði Manchester United.

Roy Keane var lengi fyrirliði Manchester United.

Canon

Mynd: Daníel Smári

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.