Fotbolti.net
30.11.07 - 15:36
Hafliði Breiðfjörð

Paul McShane í Fram (Staðfest)

Paul McShane í leik með Grindavík í 1. deildinni í sumar.

Paul McShane í leik með Grindavík í 1. deildinni í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Paul McShane skrifaði í dag undir 2 ára samning við Landsbankadeildarlið Fram en frá þessu var greint á vefsíðu félagsins nú rétt í þessu. McShane hefur leikið með Grindavík undanfarin ár en ákvað að söðla um og gekk í raðir Fram.
Paul McShane er skoskur leikmaður sem hefur leikið með Glasgow Rangers í skosku deildinni á sínum yngri árum en eftir að hafa lent í hnémeiðslum söðlaði hann um og kom til Íslands árið 1998 þegar hann var tvítugur að aldri.

Hann hefur leikið 170 leiki í efstu deild hér á landi og hefur skorað í þeim 17 mörk. Hann lék með Grindavík í 1. deildinni í sumar og skoraði þá 9 mörk í 20 leikjum auk þess sem hann spilaði einn leik með liðinu í VISA-bikarnum.

Hann var valinn í lið ársins í 1. deildinni sem fyrirliðar og þjálfarar völdu fyrir Fótbolta.net í lok tímabilsins.

McShane er fjórði leikmaðurinn sem kemur til Fram eftir að tímabilinu lauk en áður höfðu þeir Auðun Helgason úr FH, Jón Þorgrímur Stefánsson úr HK, og Halldór Hermann Jónsson úr Fjarðabyggð komið til félagsins.

Heimild: Vefsíða Fram

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.