Fotbolti.net
30.11.25 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Frank: Ekki raunverulegir stuðningsmenn

Frank: Ekki raunverulegir stuðningsmenn
Canon

Mynd: EPA

Thomas Frank, stjóri Tottenham, gagnrýndi stuðningsmenn liðsins sem bauluðu á liðið í 2-1 tapi gegn Fulham í gær.

Fulham var komið með 2-0 forystu eftir sex mínútna leik. Kenny Tete kom liðinu yfir eftir fjórar mínútur og tveimur mínútum síðar skoraði Harry Wilson með skoti á autt markið af löngu færi eftir skelfileg mistök hjá Guglielmo VIcario.

Tottenham hefur verið í bölvuðu brasi undanfarið og stuðningsmenn liðsins létu óánægju sína í ljós eftir annað markið.
Sjáðu markið: Wilson skoraði eftir hræðileg mistök Vicario
TENGT EFNI

Sjáðu markið: Wilson skoraði eftir hræðileg mistök Vicario

„Hlutirnir eru á móti þér þegar þú gengur í gegnum erfiðatíma. Fyrra markið fer af varnarmanni og seinna eru mistök. Ég kann ekki að meta hvernig stuðningsmennirnir brugðust við. Þetta er ekki ásættanlegt og þeir geta ekki verið raunverulegir Tottenham stuðningsmenn," sagði Frank.

„Við þurfum að snúa þessu við og gera það saman. Liðið var í sjokki eftir mörkin tvo, þeir eru mennskir."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.