30.12.05 - 14:16
Magnús Már Einarsson
Caneira lánaður til Sporting (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Sporting Lisabon hefur fengið varnarmanninn Marco Caneira að láni frá Valencia út þessa leiktíð en þó er enginn klásúla í samningnum þess efnis að liðið geti keypt hann næsta sumar.
Þessi 26 ára gamli portúgalski landsliðsmaður hefur lítið sem ekkert fengið að spila með Valencia í ár og því ákvað hann að fara til Sporting til að tryggja að hann verði í portúgalska landsliðinu á HM næsta sumar.
Arsenal, Bolton og Middlesbrough á Englandi og St Etienne í Frakklandi voru sögð áhugasöm um að fá Caneira en Sporting var ekki lengi til og krækti í kappann.
Arsenal, Bolton og Middlesbrough á Englandi og St Etienne í Frakklandi voru sögð áhugasöm um að fá Caneira en Sporting var ekki lengi til og krækti í kappann.
