Fotbolti.net
30.12.05 - 14:40
Magnús Már Einarsson

Hólmar lánaður til Trelleborg (Staðfest)

Hólmar lánaður til Trelleborg (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Miðjumaðurinn Hólmar Örn Rúnarsson úr liði Keflvíkinga hefur verið lánaður til sænska liðsins Trelleborg fyrstu mánuði ársins 2006 en þetta kemur fram á heimasíðu fyrrnefnda liðsins.
Í upphafi mánaðarins samþykkti Keflavík tilboð í hinn 24 ára gamla Hólmar og fór hann síðan sjálfur út til að semja við liðið. Eftir langar samningaviðræður er nú komið í ljós að hann verður á láni til að byrja með hjá Trelleborg.

Hólmar sem hefur skorað fimmtán mörk í 89 deildarleikjum með Keflavík þarf hinsvegar að ákveða sig fyrir 1.apríl hvort hann vilji ganga alveg til liðs við Trelleborg því þá lokar félagaskiptaglugginn á Norðurlöndunum.

Ef hann mun ákveða að semja ekki við Trelleborg þá mun Hólmar spila með Keflvíkingum í Landsbankadeildinni næsta sumar samkvæmt heimasíðu liðsins.

Heimild: Heimasíða Keflvíkinga

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.