30.12.06 - 18:19
Hafliði Breiðfjörð
Bjarki Freyr Guðmundsson í Keflavík (Staðfest)
Ómar framlengir samningi sínum

Ómar og Bjarki í dag.

Mynd: Jón Örvar Arason

Ómar og Bjarki í dag.

Mynd: Jón Örvar Arason
Markvörðurinn Bjarki Freyr Guðmundsson er snúinn aftur heim til Keflavíkur og gerði í dag þriggja ára samning við félagið en hann kemur frá ÍA þar sem hann hefur leikið undanfarin tvö ár.
Á sama tíma gerði Ómar Jóhannsson sem hefur varið markið hjá liðinu undanfarin ár einnig þriggja ára samning við félagið og ljóst að Keflavík verður með gríðarlega öflugan markmann á bekknum í sumar, hvor þeirra sem fær það hlutskipti.
Báðir hafa þeir orðið bikarmeistarar með Keflavík. Bjarki var í markinu þegar Keflavík varð bikarmeistari árið 1997 en Ómar nú í sumar þegar Keflavík vann VISA-bikarinn.
Bjarki Freyr er þrítugur og auk þess að hafa leikið með ÍA og Keflavík hér á landi hefur hann leikið með Stjörnunni, KR og Þrótti Neskaupsstað. Hann hefur leikið 76 leiki í efstu deild og þar af voru 14 í Landsbankadeildinni með ÍA í sumar en hann missti úr bæði vegna leikbanns og eftir að hann hélt til náms í Bandaríkjunum.
Ómar er 25 ára gamall og lék alla 18 leiki Keflavíkur í Landsbankadeildinni í sumar auk þriggja bikarleikja. Samtals er hann kominn í 54 leiki í efstu deild hér á landi en hann hefur einnig leikið með Bunkeflo í Svíþjóð.