Fotbolti.net
30.12.07 - 18:12
Hafliði BreiðfjörðHörður Snævar Jónsson

Marel Baldvinsson í Breiðablik (Staðfest)

Marel í leik með Breiðablik sumarið 2006.

Marel í leik með Breiðablik sumarið 2006.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti G. Hjartarson

Marel Baldvinsson hefur samþykkt tilboð Breiðabliks um að ganga til liðs við félagið að nýju og skrifaði undir samning þessa efnis nú í dag, samningur Marels er til þriggja ára eða til ársins 2010. Þetta staðfesti Ólafur Björnsson formaður meistaraflokksráðs Breiðabliks í samtali við Fótbolta.net nú rétt í þessu.
Marel hóf meistaraflokksferil sinn hjá uppeldisfélagi sínu, Breiðablik, árið 1997 er liðið var í næst efstu deild hér á landi.

Á tveimur tímabilum lék hann 16 leiki í næst efstu deild og skoraði í þeim eitt mark. Breiðablik komst svo upp í efstu deild og tímabilin 1999 og fram á mitt tímabil 2000 lék hann 15 leiki með liðinu og skoraði í þeim sex mörk.

Hann gekk svo í raðir Stabæk í Noregi sumarið 2000 og á tveimur og hálfu tímabili þar skoraði hann tíu mörk í 58 leikjum.

Árið 2003 fór hann svo til Lokeren í Belgíu þar sem hann var allt fram á sumarið 2006 er hann kom aftur heim í Breiðblik.

Hjá Lokeren hrjáðu meiðsli hann undir lokin en hann náði samt að spila 56 leiki og skora í þeim sex mörk.

Hann lék með Breiðablik í Landsbankadeildinni sumarið 2006 þar sem hann fór á kostum og skoraði 11 mörk í 13 leikjum þar til hann var seldur til Molde í Noregi.

Hann tilkynnti svo í síðasta mánuði að hann væri hættur hjá Molde og íhugaði að leggja skóna á hilluna. Í byrjun mánaðarins staðfesti hann svo hann hyggðist leika hér á landi næsta sumar og eftir það hafa nokkur félög sýnt honum áhuga en hann endaði á að velja sitt uppeldisfélag, Breiðablik.

Marel á að baki 15 leiki með A-landsliði Íslands auk þess að hafa leikið með öllum yngri landsliðunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.