Fotbolti.net
30.12.14 - 13:00
Magnús Már Einarsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Tveir úr Tottenham inni

Hugo Lloris var frábær í marki Tottenham gegn Manchester United.

Hugo Lloris var frábær í marki Tottenham gegn Manchester United.

Canon

Mynd: Getty Images

19. umferðin í ensku úrvalsdeildinni kláraðist í gærkvöldi þegar Liverpool lagði Swansea 4-1.

Hér að neðan má sjá úrvalslið helgarinnar hjá whoscored.com en Tottenham á tvo fultrúa í liðinu eftir markalaust jafntefli gegn Manchester United.

Crystal Palace á einnig tvo fulltrúa en mörg lið eiga einn mann í liðinu.


Hugo Lloris (Tottenham)
Lloris fór á kostum í marki Tottenham gegn Manchester United.

Mauricio Isla (QPR)
Isla var öflugur í vörn QPR í markalausa jafnteflinu gegn Crystal Palace.

Curtis Davies (Hull)
Þrátt fyrir tap gegn Leicester þá stóð Davies vaktina vel í vörn Hull.

Federico Fazio (Tottenham)
Fazio hefur ekki alltaf átt góða leiki í vetur en hann var góður gegn Manchester United.

Joel Ward (Crystal Palace)
Ward stóð sig vel í markalausa jafnteflinu gegn QPR.

Adam Lallana (Liverpool)
Lallana stimplaði sig inn með tveimur mörkum gegn Swansea.

Santi Cazorla (Arsenal)
Cazorla fór á kostum þegar Arsenal sigraði West Ham í Lundúnarslag.

Mile Jedinak (Crystal Palace)
Skeggjaði Ástralinn stóð fyrir sínu gegn QPR.

Mame Biram Diouf (Stoke)
Diouf spilaði sinn besta leik á tímabilinu þegar Stoke lagði WBA.

Ayoze Perez (Newcastle)
Perez heldur áfram að raða inn mörkum. Skoraði eitt í 3-2 sigri Newcastle á Everton.

Ashley Barnes (Burnley)
Þrumaði boltanum upp í samskeytin og tryggði Burnley stig á útivelli gegn Manchester City.

Fyrri úrvalslið í enska boltanum
Adam Lallana fagnar marki gegn Swansea í gærkvöldi.

Adam Lallana fagnar marki gegn Swansea í gærkvöldi.

Canon

Mynd: Getty Images

Cazorla stóð sig vel gegn West Ham.

Cazorla stóð sig vel gegn West Ham.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.