Fotbolti.net
31.01.05 - 11:18
Hafliði Breiðfjörð

Arteta til Everton (Staðfest)

Arteta til Everton (Staðfest)
Canon
Everton hafa gengið frá lánssamningi við Mikel Arteta út leiktíðina. Artete hefur verið pirraður yfir fáum tækifærum hjá Real Sociedad og sagðist nýlega vilja yfirgefa félagið til að fá fleiri tækifæri.
Everton var að leita að eftirmanni Thomas Gravesen sem fór til Real Madrid og Arteta mun leysa stöðu hans.

Keith Wyness framkvæmdastjóri félagsins sagði: ,,Við erum ánægðir með að Mikel hefur samþykkt að ganga til liðs við okkur og þetta er mikill fengur fyrir Everton því mörg félög höfðu áhuga."

Þá mun Everton eiga möguleika á að kaupa Arteta á 2 milljónir Evra í lok leiktíðarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.