31.01.05 - 11:49
Hafliði Breiðfjörð
Anelka til Fenerbahce (Staðfest)

Anelka skrifar undir


Anelka skrifar undir

Nicolas Anelka er orðinn leikmaður Fenerbahce í Tyrklandi eftir að hafa komist klakklaust í gegnum læknisskoðun hjá félaginu í morgun. Anelka var kynntur á blaðamannafundi hjá félaginu í morgun en hann verður í treyju númer 39 og mun spila við hlið Hollendingsins Pierre van Hooijdonk í framlínunni.
Anelka er 25 ára gamall en hann skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við félagið með möguleika á árs framlengingu.
Hann kemur frá Manchester City þaðan sem hann hefur verið undanfarin tvö ár en hefur einnig leikið með Paris Saint Germain í Frakklandi, Liverpool og Arsenal á Englandi og Real Madrid á Spáni.
Hann kemur frá Manchester City þaðan sem hann hefur verið undanfarin tvö ár en hefur einnig leikið með Paris Saint Germain í Frakklandi, Liverpool og Arsenal á Englandi og Real Madrid á Spáni.
