31.01.05 - 15:23
Magnús Már Einarsson
Coloccini til Deportivo (Staðfest)

Coloccini í leik með Villareal á síðustu lektíð.

Coloccini í leik með Villareal á síðustu lektíð.

Deportivo La Coruna hefur fengið argentíska varnarmanninn Fabricio Coloccini frá AC Milan. Coloccini sem er 23 ára stóðst læknisskoðun hjá Deportivo í morgun og gerði í kjölfarið á því samning við félagið sem gildir til júní 2011.
Deportivo hefur gengið illa á leiktíðinni og liðið hefur ekki náð að mynda nógu góða vörn síðan að Nourredine Naybet fór til Tottenham í haust.
Hinn hárprúði Coloccini mun því styrkja Depor mikið en hann hefur leikið með þremur spænskum liðum á láni og þekkir hann því La Liga vel. Liðin sem hann hefur leikið með á Spáni eru Alavés (2001/02), Atlético Madrid (2002/03) og Villarreal (2003/04).