Fotbolti.net
31.01.05 - 16:45
Magnús Már Einarsson

Djemba-Djemba til Aston Villa (Staðfest)

Djemba-Djemba til Aston Villa (Staðfest)
Canon
Aston Villa hefur gengið frá kaupunum á kamerúnska miðjumanninnum Eric Djemba-Djemba frá Manchester United. Þessi 23 ára gamli leikmaður kom til Manchester United fyrir um einu og hálfu ári síðan en hann náði aldrei að sanna sig almennilega hjá liðinu.
Ekki hefur verið gefið upp hvað Djemba-Djemba kostar Aston Villa en leikmaðurinn stóðst læknisskoðun hjá liðinu með glæsibrag fyrr í dag.

Djemba-Djemba lék alls 39 leiki á ferli sínum með Manchester United en hann ætti að geta leikið sinn fyrsta leik með Aston Villa gegn Fulham í ensku úrvalsdeildnni á miðvikudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.