Fotbolti.net
31.01.05 - 20:34

Pennant til Birmingham (Staðfest)

Pennant til Birmingham (Staðfest)
Canon
Jermaine Pennant hefur verið lánaður frá Arsenal til Birmingham. Pennant var í láni hjá Leeds United á síðustu leiktíð en hann hefur aðeins leikið tólf leiki með Arsenal á þessari leiktíð og þar af komið oftast inn á sem varamaður.
Samningur hins 22 ára gamla Pennant við Arsenal rennur út í sumar en hann kom til liðsins frá Notts County á tvær milljónir punda árið 1999.

Hann mun á morgun fara fyrir rétt vegna ákæru um ölvunarakstur eftir að hafa ekið á ljósastaur. Bíllinn sem hann var á var í eigu Ashley Cole félaga hans í Arsenal.

Pennant verður til í slaginn á miðvikudaginn þegar Birmingham mætir Southampton en hann verður í treyju númer 8 hjá félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.