31.01.06 - 06:16
Hafliði Breiðfjörð
Oscar Perez til Bolton (Staðfest)

Sam Allardyce

Mynd: Getty Images

Sam Allardyce

Mynd: Getty Images
Bolton Wanderers gengu í gærkvöld frá samningum við spænska miðvallarleikmanninn Oscar Perez sem kemur á frjálsri sölu til liðsins. Perez sem var 24 ára gamall hafði verið leystur undan samningi sínum við Cordoba sem leika í þriðju deildinni á Spáni.
Bolton ákváðu að fá leikmanninn í sínar raðir eftir að ljóst varð að Ivan Campo verður frá keppni í 10 vikur vegna fótbrots.
,,Við höfum samið við Oscar til að styrkja fjöldann á miðsvæðinu mikilvæga," sagði Sam Allardyce stjóri Bolton á vefsíðu félagsins.
,,Hann hefur spilað meiri hluta ferils síns í neðri deildum á Spáni og mun aðallega fá tækifærið með varaliðinu og hugsanlega í aðalliðinu síðar á leiktíðinni. Hann er með frábært viðhorf til æfinga og með réttum æfingum getur hann þróað feril sinn á Englandi."
Perez lék aðeins 16 leiki með Cordoba. Hann hefur áður leikið með Eibar, Real Oviedo og Lealtad.