31.01.06 - 06:46
Hafliði Breiðfjörð
Samaras til Man City (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson
Gríski framherjinn Georgios Samaras gekk í gær í raðir Manchester City frá Heerenveen í Hollandi en kaupverðið er 6 milljónir punda. Samaras sem er tvítugur gekk frá samningum í gærkvöld eftir að hafa komist að samkomulagi um kaup og kjör og gengist undir læknisskoðun.
Hann mun spila sinn fyrsta leik fyrir City gegn Newcastle í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld, það er að segja ef hann verður kominn með leikheimild. Hann mun hafa gert fjögurra og hálfs árs samning við Man City.
City höfðu áður boðið 3 milljónir punda í framherjann sem fór í verkfall í stað þess að mæta aftur til æfinga hjá Heerenveen sem vildu næstum 9 milljónir punda fyrir hann. Að lokum náðist samkomulag um 6 milljón punda kaupverð á laugardagskvöld.
Samaras mun verða kynntu á fréttamannafundi á æfingavelli félagsins á Carrington í dag.